Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 475/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 475/2023

Fimmtudaginn 14. desember 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. september 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 11. september 2023. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hún ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. september 2023. Með bréfi, dags. 5. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. október 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. október 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að rökstuðningur Vinnumálastofnunar hafi verið sá að hún hefði ekki mætt í tíma hjá Frumkvæði. Kærandi hafi hins vegar spurt ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun í tvígang hvort hún mætti taka verkefni á meðan hún væri í prógramminu og hafi fengið jákvætt svar í bæði skipti. Kærandi hafi einnig spurt hvort hún ætti að taka verkefni sem gætu þjónað frumkvæðisverkefninu vel þegar kæmi að því að byggja upp tengslanet og kúnnahóp. Það hafi svo gerst en vinnan sé þess eðlis að hún krefjist þess að kærandi sé á staðnum. Kærandi hafi í tvígang reynt að taka netnámskeiðin en þar sem hún hafi verið búin með báða áfangana á Meistaranámssviði í Háskólanum í Reykjavík hafi hún ekki sett það í forgang. Kærandi hafi sett í forgang að vinna vinnu sem myndi skila peningum sem hafi átt að fara í að búa til fyrirtæki. Vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar hafi kærandi þurft að nota þann pening í leigugreiðslur. Nú fái kærandi ekki atvinnuleysisbætur til þess að borga fyrir námskeið sem hún hafi ekki fengið neitt út úr. Kærandi fái ekki fjárhagsaðstoð og geti ekki borgað leigu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 11. september 2023. Umsókn hennar hafi verið samþykkt þann 18. september 2023. Þar sem kærandi hafi enn átt eftir að taka út ótekinn biðtíma vegna fyrri umsóknar sinnar hafi hún ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrr en að þeim biðtíma liðnum. Kærandi hafi sætt tveggja mánaða biðtíma á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 þann 14. júní 2023. Hún hafi hins vegar ekki tekið út biðtíma samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar þar sem hún hafi verið afskráð af atvinnuleysisskrá í sama mánuði. Þar sem tveir mánuðir hafi enn verið eftir af óteknum biðtíma kæranda þegar hún hafi sótt að nýju um greiðslur atvinnuleysisbóta í september 2023 hafi biðtími haldið áfram að líða.

Kæranda hafi með erindi, dags. 18. september 2023, verið tilkynnt að bætur til hennar yrðu ekki greiddar fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Mál þetta varði ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Ákvörðun um biðtíma á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé frá 14. júní 2023.  Kærufrestur vegna þeirrar ákvörðunar sé því liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Í þessu máli sé til umfjöllunar hvort kærandi hafi átt að sæta eftirstöðvum biðtíma þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur í september 2023. Þegar kærandi hafi sótt að nýju um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 11. september 2023, hafi eftirstöðvar biðtíma enn verið tveir mánuðir, enda hafi biðtími hennar aldrei byrjað að líða þar sem hún hafi verið afskráð frá og með 1. júní 2023.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Í 3. mgr. 58. gr. laganna komi fram að taki hinn tryggði starfi sem sé ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á biðtíma samkvæmt 1. mgr. standi falli biðtíminn niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í að minnsta kosti hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur, enda hafi hann sagt starfinu lausu eða misst það af gildum ástæðum. Þá segi í 3. mgr. að ef starfið vari í skemmri tíma, hann hafi sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst það af ástæðum sem hann eigi sjálfur sök á haldi biðtíminn áfram að líða þegar hinn tryggði sæki aftur um atvinnuleysisbætur.

Kærandi uppfylli ekki skilyrði 3. mgr. 58. gr. um niðurfellingu biðtíma, enda hafi hún ekki starfað á vinnumarkaði áður en hún hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þar af leiðandi hafi biðtími hennar haldið áfram að líða þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur að nýju þann 11. september 2023.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda og staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júní 2023, var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Kærandi var afskráð af atvinnuleysisskrá 1. júní 2023 þar sem hún staðfesti ekki atvinnuleit. Tveggja mánaða viðurlagatími var þá ekki byrjaður að líða. Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. september 2023. Umsókn kæranda var samþykkt 18. september 2023 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.

Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Í 3. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að taki hinn tryggði starfi sem sé ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma samkvæmt 1. mgr. standi falli viðurlögin niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í að minnsta kosti hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur, enda hafi hann sagt starfinu lausu eða misst það af gildum ástæðum. Þá segir í 3. mgr. að ef starfið vari í skemmri tíma, hann hafi sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst það af ástæðum sem hann eigi sjálfur sök á haldi viðurlagatíminn áfram að líða þegar hinn tryggði sæki aftur um atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins uppfyllir kærandi ekki skilyrði 3. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um niðurfellingu viðurlagatíma þar sem hún starfaði ekki á vinnumarkaði á viðurlagatímanum. Þá hafði kærandi ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laganna, enda einungis rúmlega þrír mánuðir liðnir frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga áfram að líða þegar hún skráði sig atvinnulausa að nýju 11. september 2023. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum